OOOOO Ég er bara gölluð:(

jæja ég er notla bara gölluð manneskja ekki það að ég sé ekki búinn að vera að gera eitthvað í mínum málum ég er búinn að léttast um 10 kíló og er að reina að vera í hollustunni (þó það takist nú ekki alltaf) en alltaf skal  það gerast ég pikk festist í bakinu í vinnunni og get mig ekki hreift Crying  og hún elsku Hulda mín sem er yfirmaðurinn minn endar alltaf með því að þurfa að keyra mig á heilsugæsluna til að láta sprauta í bakið á mér.

Nú í gær þá endurtók þessi saga sig eina ferðinni enn og gæti ég trúað að vinnuveitendur og aðrir séu ornir frekar þreyttir á þessu vandamáli mínu , en ég er að vona núna að þetta eigi eftir að ganga upp þar sem Sturla læknirinn minn sagði mér ástæðuna fyrir því að þetta er alltaf að gerast. Nú ég er nota bara of þung sem er alveg rétt hjá honum og ég held mér bara ekki nóg og vel uppi.

 

ég sem hélt að ég væri nú óvenjulega sterka af kvennmanni að vera en svo er víst ekki , bakkið fer í klessu á vissum tímum og svo er það sprautað í það og þá er það í lagi í nokkrar vikur en svo gerist þetta aftur og þetta heldur víst bara áfram þanga til að ég ákveð að fara að gera eitthvað í málunum.  Sturla ráðlagði mér að fara í sund og reina að synda til að liðka litlu vöðvana í bakinu sem eru ekki í nóg og góðu formi sem ég ætla mér að gera hvort sem það verðu á morgnana sem ég fer eða eftir vinnu .

En nóg um það  í dag eru tvö afmæli í minni fjölskyldu það er að segja pabbi sem er að verða 43 ára og amma sem ég er ekki alveg með á hreinu hversu gömul hún er að verða en það er eitthvað yfir 75 árinn en það verður bara gaman þannig að ég þarf að fara og reina að finna einhverjar afmælisgjafir sem verður notla bara gaman.

nú ég er að hugsa um að kvarta ekki mikið meira hérna í bili  þannig að ég segi þá bara bless í bili

 

kv                    frú busk


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Jahh aldrei hélt ég að hörkukvendið hún Kristrún myndi gefa sig líkamlega, en á ég að seigja þér ógeð gott leindarmál til að vera í hörkuleikfimi án þess að leggja nokkuð á bakið, svona til að byrja með á meðan þú ert að ná þér?

Það er SUNDLEIKFIMI hljómar eins og þetta sé bara fyrir gamlar kerlingar og maður er oft hálfasnalegur við þessa iðju en guð minn góður hvað þetta virkar, þú getur spriklað eins og þú þarft án þess að finna til í bakinu, og svo er gott að synda alltaf

Mér skillst að það sé rosa góð sundleikfimi niðri á hæli alltaf, þú ættir að kynna þér það, mér finnst allavegana ógeð gaman í svoleiðis.

 Svo skaltu passa þig á sprautonum elskan mín, læknir á Reykjalundi sagði mér að þær væru ágætar til síns brúks í styttri tíma, en þegar maður er farinn að fara oft þá getur efnið sem er sprautað í vöðvann orsakað  það að vöðvinn fer að rotna, en þetta eru samt nokkura ára upplýsingar sem ég hef, þannig að ég mæli með því að þú spyrjir lækninn þinn út í þetta.

Vona að þér fari nú að batna fjandinn hafi það, það er alveg djöfullegt að missa bakið svona

Svo ætla ég að biðja þig að kyssa pabba þinn og ömmu búsk frá mér, svo máttu líka alveg smella einum á mömmslu í leiðinni

Ylfa Lind Gylfadóttir, 7.5.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Jórunn kom með aldeilis góða hugmynd í dag, í nálarstungur til hennar Ágústu og náttúrulega að synda  

Allar í sund

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 7.5.2008 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband